Fréttir frá árinu 2007
17.12
Örlítið meir að lesa :)
Askasleikir heimsótti börnin í dag 17. desember og færði þeim sitthvort eplið. Þau voru nú heldur betur ánægð og eplin voru
morgunmaturinn þeirra áður en þau fóru í leikskólann. Þegar ég sótti þau á leikskólann voru þau búin að búa til jólagjafir handa
mér og Össa sem og Magnúsi. Þau voru voða spennt yfir því að fá loksins að taka gjafirnar með heim. Björn Elvar tilkynnti mér að
hann ætlaði sko ekki að segja mér hvað væri í pökkunum ég yrði bara að bíða róleg þangað til á aðfangadag.
EN hvað er með þetta veður eiginlega??? Er þetta ekki komið gott??? Ég er komin með leið á þessu veðri, maður veit aldrei hvort það
er logn eða rok lengur. Þetta hlýtur að ganga yfir fyrr eða síðar, bara ef að þetta væri ekki svona byljasamt.
Ég er sko búin að komast að því að íslendingar eru óeðlilega kaupóðir þessi jólin. Það er búið að vera svo mikið að gera núna fyrir
jólin að senda vörur út á land í IKEA. Mér fannst það nóg um síðustu jól en það er meira núna. Svo er ég alveg hætt að skilja þessa
íslensku verslunartakta...... það er yfirleitt aldrei meira að gera en þegar vont er í veðri og eftir því sem að veðrið er verra
þeim mun meira er að gera og því spyr ég..... “Hvað er að íslendingum??????” Og af hverju er fólk ekki heima hjá sér þegar það er
vont veður í stað þess að hlaupa út í búð og versla?
Jæja nú ætla ég að drattast á fætur og reyna að gera eitthvað að viti hehehehe......
B-Í-B
16.12
Ég held að ég sé bara komin í einhvern blogg-ham
Börnin eru voðalega spennt þessa dagana, nú eru jólasveinarnir nefnilega farnir að koma til byggða og setja eitthvað í skóinn hjá
þeim ef að þau eru góð. Þau reyna nú eftir mesta megni að haga sér eins vel og þeim er unnt.
12. desember kom Stekkjastaur með mandarínu handa þeim, þau voru ekkert smá ánægð og voru fljót að flysja hana og borða áður en þau
fóru í leikskólann. 13. desember kom Giljagaur með vínber, þau fengu sér nokkur áður en þau fóru í leikskólann en vildu eiga rest
þegar að heim kæmi. 14. desember kom Stúfur með mandarínu, þau voru ánægð en hefðu samt alveg viljað eitthvað annað þar sem
Stekkjastaur hafði líka komið með mandarínu en hún var fljót að hverfa ofan í þau. 15. desember mætti Þvörusleikir með rúsínur og
vá hvað þau voru sæl enda hurfu þær ofan í þau eins og dögg fyrir sól. Í dag 16. desember kom svo Pottaskefill með jólapúkanammi
sem þau mauluðu meðan þau horfðu á teiknimyndir. Um ellefuleitið fór ég með börnin í IKEA, starfsfólk með börn kemur saman með
börnin sín og málar á piparkökur. Björn Elvar og Stefanía Dúfa máluðu fjöldann allan af piparkökum. Um hádegisbil birtust svo
jólasveinarnir Hurðaskellir og Skyrgámur og sungu fyrir börnin og þar sem að við höfðum ekkert jólatré að dansa í kringum þá
dönsuðum við bara í kringum annan jólasveininn. Jólasveinarnir sungu og dönsuðu með börnunum í rúman klukkutíma áður en þeir gáfu
þeim nammipoka úr sekkjum sínum og héldu á brott. Þegar jólasveinarnir voru farnir settum við piparkökurnar okkar í poka og fórum
heim. Börnin fengu sér smá í gogginn áður en þau fengu sér nammi að maula. Við tókum svo smá forskot á jólin í dag, þar sem að
börnin verða hjá Magnúsi á jólunum, og skreyttum jólatréð með börnunum. Það er nú venjan hjá okkur að skreyta jólatréð á
Þorláksmessukvöld en því var breytt núna fyrir börnin, það er svo gaman að sjá þau skreyta og þau voru svo sæl þegar tréð var
tilbúið. Þau voru rosalega dugleg að hjálpa mér að skreyta tréð og það lítur nú bara nokkuð vel út. Þeim finnst það bara sport að
fá að hafa jólatréð uppi lengur en vanalega.
Jæja ég veit ekki hvað ég á að skrifa meir í bili en kem kannski með eitthvað að lesa á morgunn eða hinn.
B-Í-B (Bless í bili)
15.12
Hér kemur framhaldið sem ég lofaði :)
Á meðan við vorum úti í Barcelona voru Björn Elvar og Stefanía Dúfa hjá mömmu á Akranesi, fór ég með þau þangað daginn sem við
flugum út. Þau voru rosalega hrifin af því að fá að gista hjá ömmu í nokkra daga og fá að fara með henni á árlega jólahlaðborðið
sem við förum alltaf á. Þegar ég var að kveðja börnin var eins og ég væri ekki til það kom bara “bæbæ ok farðu við erum komin til
ömmu” og ég fékk varla að knúsa þau bless þau máttu ekkert vera að því. Það er nefnilega alltaf eitthvað að skoða hjá ömmu og svo
þurftu þau að segja henni frá svo mörgu.... eins og að það þyrfti að bursta tennurnar tvisvar á dag, taka lýsi og þar fram eftir
götunum.
Ég var komin aftur í bæinn um hádegisbil og fattaði þá að ég var ekki með heilsufarskortið hennar Sóldaggar svo hægt væri að
innrita hana á Hundahótelið á Leirum þannig að ég mátti bruna alla leið upp í Breiðholt og sækja það til þess að fara aftur upp í
Mosfellssveit, gaman það...... Þegar ég var komin heim til að sækja kortið var Össi kominn heim úr vinnunni svo hann kom með mér að
innrita Sóldögg á hótelið. Þegar við vorum komin að Leirum og farin út úr bílnum heyrðum við stórt feitt urr þannig að við litum í
kringum okkur og komum auga á stóran rottweiler hund sem var þarna inni í girðingu og tók svona vel á móti okkur hehehe hummm.
Okkur stóð nú ekki á sama en hann var inni í girðingu þannig að þetta var allt í lagi, hundurinn var engin smá smíði. Þegar eigandi
hundahótelsins var kominn til að taka á móti okkur breyttist hundurinn rottweilerinn í þessa líku ljúfu og sætu típu bara við það
eitt að sjá manninn, við sáum það að hundurinn gjörsamlega dýrkaði manninn. Það var ekki neitt smá skrítið að sjá þetta gerast. Við
fengum reyndar líka skýringu á því af hverju þetta gerðist og þess háttar þannig að við skiljum nú alveg af hverju þessi breyting
varð á hundinum, ég ætla ekki að fara nánar út í það hér. Sóldögg var innrituð og komið fyrir í sínum klefa með bælið sitt sem
fylgdi henni þannig að hún hefði nú einhverja kunnuglega lykt hjá sér. Hún var nú ekki alveg sátt við að fara í klefann en það gekk
fyrir rest.
Nú var haldið heim á leið og því næst á völlinn
– allt sem á að vera hér á milli var skrifað í gær og nú kemur heimkomuframhaldið –
Þegar við vöknuðum morguninn eftir fór Össi að vinna en ég fór og sótti Sóldögg á hundahótelið. Eigandi hótelsins sagði mér að
Sóldögg væri eitthvað slöpp og hún væri með niðurgang og að hún hefði misst frá sér í bælið sitt, sem hann var reyndar búinn að
þrífa og þurrka. Hann sagði mér einnig að alla dagana hefði hún farið út og verið með hinum hundunum nema þennan morgunn þá neitaði
hún að fara út. Hún hefði rekið trýnið út en farið strax inn aftur og svo stuttu eftir það hefði gamanið byrjað niðurgangur og
skemmtilegheit... Þegar við Sóldögg vorum búin að ganga frá borgun og vorum að fara sótti maðurinn fullann poka af hundanammi handa
Sóldögg og gaf okkur nokkur góð ráð við niðurganginum. Sóldögg var greinilega mjög hrifin af manninum því hún gróf sig inn í hann
þegar hann beygði sig niður til að kveðja hana, gaman af því.
Því næst var haldið til Möggu mágkonu að sækja gríslingana. Mamma hafði farið með þau til hennar deginum áður þar sem hún var að
fara að vinna og Magga var svo góð að hún bauðst til að vera með þau þar til við kæmum heim á klakann. Við ætluðum að sækja þau á
mánudagskvöldið en Magga stoppaði það eiginlega af þar sem við vorum ekki kominn fyrr en svo seint og börnin sofnuð hjá henni.
Börnin máttu nú varla vera að því að heilsa mér þegar ég kom að sækja þau til Möggu. Þau voru nýbúin að fá sér morgunnmat og enn að
skottast í náttfötunum. Svo var eins og það væri ýtt á takka og allt í einu var mamma komin og allir að knúsa í einu. Þegar búið
var að koma börnunum í fötin og tína saman dótið þeirra og við það að koma okkur út úr dyrunum byrjaði Sóldögg að æla, gaman það,
reyndar ekki mikið en samt þannig að ég þreif upp eftir hundinn og svo drifum við okkur heim svo hún væri nú ekki ælandi og
skítandi út um allt hjá Möggu og Dóra. Ég var varla komin út úr blokkinni hjá Möggu og Dóra þegar Sóldögg greyið skeit og ældi
fyrir utan hehehe, til allrar lukku var ég með poka þannig að ég gat þrifið upp eftir hana og fleygt í ruslið. Þegar við vorum
komin heim sá ég að Sóldögg hafði ælt í nýþvegið bælið sitt á leiðinni, gaman, gaman. Við komumst upp hálfa leið í stigaganginum
heima þegar að Sóldögg byrjaði að æla aftur og til allrar lukku þá hafði Stefanía Dúfa gripið með einhvern bækling í anddyrinu sem
að ég gat sett undir þannig að ælan fór öll á bæklinginn sem betur fer. Þegar upp var komið byrjaði ég á að sjóða hrísgrjón handa
Sóldögg, meðan grjónin voru að eldast náði ég í það sem við keyptum handa börnunum á Barcelona. Börnin skoðuðu þetta örlítið og svo
kom hvar er útlenska nammið sem við báðum um????? Svo ég gróf upp útlenska nammið og gaf þeim, það var miklu meira spennandi en
gjafirnar hehehe. Meðan börnin jöpluðu á útlensku nammi og skoðuðu gjafirnar byrjaði Sóldögg aftur að æla gaman, gaman eða þannig
og ekki vildi hún éta hrísgrjónin sem ég sauð handa henni eða nokkuð annað sem ég bauð henni nema hún vildi vatn að drekka. Ég gaf
henni vatn en komst fljótt að því að það var ekki gáfulegt af mér þar sem hún byrjaði nú að æla alveg á fullu. Ég var byrjuð að
teppaleggja íbúðina með fréttablaðinu og öðrum tiltækum blöðum og alltaf reyndi Sóldögg greyið að æla ofan á blöðin og þegar þarna
var komið var mér alveg hætt að lítast á blikuna. Sóldögg ældi aftur og aftur, var lystarlaus og farin að skjálfa eins og hrísla,
hún var bara orðin fárveik. Um hádegisbil hringdi ég upp á dýraspítala í Víðidalnum og talaði við konu þar sem sagði mér að koma
með hana strax því hún vildi líta á hana sem fyrst. Ég klæddi börnin upp og dreif mig upp á spítala með Sóldögg. Hún var skoðuð
hátt og lágt og mér sagt að hún væri með mjög slæma hundaflensu og að þessi flensa væri að ganga núna meðal hunda í Reykjavík,
einnig var ég spurð hvenær hún hefði lóðað síðast. Ég var svolítið hissa á því en svaraði samt og þá var mér sagt að hún væri með
gervióléttu og það væri mjólk í spenunum. Sóldögg var sprautuð með ógleðistillandi lyfi sem og hún fékk eitthvert þarmaflórulyf til
inntöku, hún fékk fyrsta skammtinn á spítalanum og þegar við vorum að fara út ældi hún því öllu á gólfið hehehumm... Þær sögðu mér
að taka af henni allan mat og vatn og gefa henni þetta lyf á tveggja tíma fresti sem og örlítið af vatni og þá ætti hún að vera
orðin góð um seinni part dags. Ég og börnin reyndum eftir bestu getu að hjúkra greyið Sóldögg og gefa henni lyfið en alltaf skilaði
hún því eftir smá stund og hélt áfram að æla en niðurgangurinn var hættur. Inn á milli þess sem að ég var að þrífa upp ælu eftir
Sóldögg sat ég með börnunum og hlustaði á það sem þau höfðu að segja um veruna hjá ömmu á Akranesi og Möggu og Dóra. Þau höfðu svo
gaman af þessu og skemmtilegast fannst þeim að fara í húsdýragarðinn með Möggu og fjölskyldu að skoða öll dýrin og borða nesti.
Þegar Össi kom heim úr vinnu var Sóldögg orðin slappari. Hún var farin að skjálfa meira og hætta að líta við vatnssopa og öllu öðru
sem ég reyndi að vekja áhuga hennar með svo ég hringdi aftur á spítalann og talaði við þær þar. Þær voru ekki hressar með þessa
fréttir og báðu mig um að koma með hana strax sem ég og gerði. Hún fékk aftur ógleðistillandi lyf og nokkrar töflur sem hún átti
að fá á nokkurra tíma fresti og ef að hún væri ekki orðin góð um tvö að nóttu átti ég að hafa samband aftur en ef að húnværi farin
að braggast eitthvað smá átti ég að sjá til um morguninn og þá jafnvel að fara með hana í næringargjöf þá um morguninn áður en ég
færi til vinnu ef mér litist ekki nógu vel á hana. En sem betur fer fór Sóldögg að braggast þannig að ég sleppti því að hringja þá
um nóttina og um morguninn var hún orðin enn betri þó svo hún mætti vera betri.... Ég ákvað því að sjá til og fór því í vinnuna og
þegar ég kom heim var Sóldögg orðin eins og hún á að sér að vera. Núna er ég sko búin að komast að því að það er ekkert auðveldara
að vera með veikan hund frekar en veik börn.
Jæja nú skrifa ég ekki meir í kvöld en ætla í staðinn að koma með eitthvað fyrir ykkur sem kíkið á síðuna okkar að lesa á morgunn.
B-Í-B eða Bless í bili eins og Tumi tígur segir
13.12
Jæja loksins kemur eitthvað að lesa :)
Ástæður þess að ekkert hefur verið ritað hér eru tvær..... tæknibilun í heimasíðunni og leti hehe.....
Það sem er kannski hvað helst að frétta er að við fórum til Barcelona með vinnunni hans Össa, þetta var árshátíðarferð, munar
ekkert um það. Mikið rosalega var gaman úti :). Við flugum út seinni partinn á fimmtudeginum 15. nóvember og vorum um fimmtíu í
allt. Þegar við vorum komin á Völlinn og búin að innrita okkur leituðum við uppi ferðafélagana og fengum okkur hressingu áður en
við fórum í loftið. Flugið var ágætt en mikið er rosalega leiðinlegt að ferðast svona þröngt. Þegar við vorum komin til Barcelona
og búin að innrita okkur á Hotel City Park fórum við að sofa, ákváðum að safna kröftum fyrir næsta dag. Á föstudeginum ákváðum við
að vera bara útaf fyrir okkur og skoða það sem við vildum sjá. Við röltum frá hótelinu niður á höfn og fórum í L’Aquàrium
sædýrasafnið, þetta er rosaflott safn við skoðuðum alla króka og kima. Þarna er hægt að ferðast um á færibandi undir glerhvelfingu
þar sem maður horfir á fiskana, sköturnar og hákarlana synda yfir, svolítið spooky en flott. Þarna eru til hinar ýmsu skrýtnu
sjávarverur eins og laufsæhestar sem við héldum að væru sjávargróður hehe.... og margt fleira. Þegar við vorum búin að skoða allt
sem við fundum fórum við út og skoðuðum allt skemmtiskipa safnið sem var í höfninni. Engar smá snekkjur sem voru þarna og engin smá
smíði á sumum þeirra. Því næst héldum við í Zoològic Barcelona, þetta er enginn smá dýragarður. Við fengum kort af garðinum þegar
við borguðum okkur inn og við gengum hverja einustu götu á kortinu og fórum inn í öll þau hús sem að voru opin almenningi. Það sem
kom mér mest á óvart er hvað vísundarnir eru litlir, kannski ekki litlir en þeir eru minni en ég hélt og svo eru sumar
kattartegundirnar minni en ég hélt, kannski vegna þess að það er búið að mikla þær svo mikið í bókum og sögum. Þegar við vorum
loksins búin að rölta hringinn í garðinum var verið að loka enda klukkan orðin 18 að spænskum tíma. Við röltum nú áleiðis að
hótelinu, fundum okkur veitingastað og fengum okkur næringu enda orðin svolítið hungruð eftir allt þetta rölt. Þegar við vorum að
skoða matseðilinn sáum við rétt sem heitir “Tveir borgarar með eggi og salati”, þannig að við ákváðum að panta einn svoleiðis og fá
okkur sinn hvorn bjórinn til að skola matnum niður. Við bentum þjóninum á að koma og pöntuðum. Hann horfði á okkur og spurði hvort
það væri bara virkilega ein svona máltíð og bjórarnir tveir, við játuðum því. Hann spurði aftur og við játuðum aftur. Við skildum
svo hvers vegna hann spurði tvisvar þegar maturinn kom hehehehe..... “Tveir borgarrar með eggi og salati” er í raun bara
hamborgarakjötið, egg og salat, en það dugði fyrir okkur. Á meðan við vorum að borða þá hringdi ég í Jónas Sænska sem vann með mér
í IKEA og mæltum við okkur mót seinna um kvöldið. Þegar við ætluðum að rölta heim neituðu fæturnir að hlýða svo að við tókum
leigubíl restina af leiðinni enda búin að rölta fleiri, fleiri kílómetra.
Við hittum svo Jónas Sænska á Catalunya-torgi um kvöldið og fór hann með okkur á pöbbarölt og sýndi okkur næturlífið á Barcelona.
Við fundum einhvern bar í svokölluðu “Barri Gòtic” hverfi, þar sátum við sötruðum bjór og spjölluðum saman um allt milli himins og
jarðar en þó aðallega um hesta :). Jónas sagði okkur frá hesthúsi eða öllu heldur reiðskóla sem er inni í miðri Barcelona og var
ákveðið að við færum með honum á sunnudeginum að skoða reiðskólann. Þegar klukkan var farin að ganga þrjú um nóttu ákváðum við
finna McDonalds og fá okkur borgara með Jónasi áður en við héldum til baka á hótelið.
Á laugardeginum ákváðum við að fara í smá jólagjafaleiðangur og versla jólagjafir fyrir börnin. Við fórum í El Corte Inglés sem er
ekki nema átta hæðir, við vorum ekki lengi að finna gjafirnar handa börnunum þegar við loksins fundum barna-hæðina. Þegar við vorum
búin að versla héldum við á hótelið að undirbúa okkur fyrir árshátíðar-kvöldið.
Árshátíðin var haldin á hótelin, maturinn var rosalega góður og þjónustan var mjög góð. Þjónninn hefði samt mátt vera örlítið
afslappaðari, hann var ekkert smá stressaður. Þegar búið var að metta sig og drekka svolítið fórum allur hópurinn á pöbbarölt í
hverfinu. Mikið var um gleði og flestir ef ekki allir frekar reifir og vel í glasi og gleðin entist langt fram á nótt :).
Á sunnudeginum fóru flestir úr hópnum og skoðuðu F.C Barcelona / Nou Camp leikvanginn, hann er engin smá smíði. Það er svo mikið að
skoða þarna þó svo maður hafi engan áhuga á fótbolta :) við röltum eftir einhverri fyrir fram ákveðinni leið og fórum um allan
leikvöll þetta var æðislega gaman. Eftir leikvallar-ferðina fórum við og hittum Jónas og fórum með honum að skoða reiðskólann sem
er mjög stutt frá Ólympíuleikvanginum. Hestarnir þarna eru ekkert smá stórir, ég stóð við hliðina á einum sem var það hár að
herðakamburinn á honum var hærri en ég, ég er ekkert rosa smá. Þarna voru líka smáhestar og þeir voru litlir :). Við eyddum um
þremur tímum í hesthúsunum með Jónasi. Oft hefur maður haldið að maður væri að hugsa vel um hestana sína þegar maður kembir þeim og
strýkur hátt og lágt og skolar af þeim skítinn og burstar í gegnum fax og tagl. En það er nú öðru nær ef maður miðar við það sem
við sáum þarna...... það er ekki nóg með að allt þetta sé gert þarna úti þá teygja þeir líka á hverjum fæti og margt fleira þó svo
ekki væri verið að fara brúka hestana. Eftir hesthúsferðina og hafa kvatt Jónas fórum við og ætluðum að skoða Sagrada Família
kirkjuna en þar sem við vorum orðin svo svöng ákváðum við að fá okkur að borða fyrst sem við og gerðum, en þegar við vorum búin að
því var orðið svo dimmt úti að við sáum eiginlega ekkert svo við héldum á hótelið og fórum snemma í háttinn. Á mánudeginum gerðum
við aðra tilraun til að skoða Sagrada Família sem tókst betur. Mikið rosalega er þetta falleg kirkja og hún er enn í byggingu og
búin að vera það síðan 1882 að ég held frekar en 1852, enginn smá tími það. Við fórum ekki inn í kirkjuna það var svo löng biðröð
að við ákváðum að vera ekkert að troða okkur. Við röltum aðeins þarna um hverfið og versluðum smávegis fyrir okkur og börnin áður
en við héldum á hótelið að pakka niður svo við yrðum ekki á síðustu stundu þegar kæmi að því að ferja hópinn á völlinn.
Þegar búið var að innrita okkur röltum við örlítið um fríhöfnina áður en við fórum í vélina og flugum heim. Mikið rosalega var
gaman að horfa út um gluggann á vélinni þegar við vorum að fljúga yfir, það var dimmt og engi ský svo að öll ljós sáust svo vel.
Þegar við vorum komin heim var farið að sofa og safna orku fyrir næsta dag þar sem Össi var að fara að vinna og ég að sækja börnin
og hundinn. Eftir því sem að ég man best þá vorum við frekar fljót að sofna.
Jæja ég ætla að láta þetta duga í bili og ég kem með framhald seinna í kvöld eða á morgunn. Ég er orðin frekar þreytt í höndunum á
þessum innslætti hehehe :)
Kveðja frá okkur til ykkar. Bless í bili. :)
28.10
Loksins komin með netið aftur.......
Sælt veri fólkið sem kíkir hér inn eftir einhverjum fréttum og aðrir líka.
Ég ætla að byrja á því að óska mér til hamingju með 30tugs afmælið mitt þann 26.okt síðast liðinn.
Ekkert höfum við getað bloggað síðustu sunnudaga vegna netleysis. Sunnudaginn 14 okt vorum við að flytja búferlum úr
Þorláksgeislanum í íbúðina okkar í Torfufelli og enginn hafði orku til að tengja tölvuna eftir flutningana hehe og engin nettenging
heldur þar sem við vorum að flytja. Á mánudeginum hringdum við svo til símanns og báðum um flutning sem átti að taka 1 - 3 daga
þannig við ákváðum að blogga um leið og nettenging væri komin á. EN ekkert var farið að gerast í sambandi við netið á miðvikudaginn
svo við hringdum aftur og þá var okkur sagt að þetta ætti að vera komið inn á föstudaginn í síðastalagi þar sem einhver frá símanum
þyrfti að koma og tengja eitthvað í símagrindinni, ok ekkert mál, en á föstudeginum var ekkert komið svo við hringdum einu sinni
enn og fengum þá að vita að við þyrftum að bíða þangað til á miðvikudag... nú var farið að fjúka í mína og lét ég það í ljós við
þann sem ég talaði við.... Á mánudagsmorgunn hringdi ég enn einu sinni og bað um að þetta yrði nú lagað og mér sagt eina ferðina
enn að ég þyrfti að bíða og það til miðvikudags eftir að maður kæmi til að fikta í símagrindinni og ég sagði þeim að þetta væri
farið að bitna á skólanum og ég vildi að þetta kæmi inn sem fyrst því ég væri farin að missa af skilaverkefnum. Á miðvikudaginn var
ekkert net komið svo ég hringdi enn einu sinni og talaði við þá hjá símanum.... og fékk að vita það að ekkert net kæmi inn fyrr en
í fyrsta lagi á fimmtudag og jafnvel seinna. Þarna fyltist mælirinn og ég lét strák-greyið sem ég talaði við alveg heyra það, mér
findist þetta nú frekar slök þjónusta að segja 1 - 3 dagar en meina 11 dagar og skammaðist yfir þessari lélegustu þjónustu sem ég
hefði fengið hjá þeim til þessa. En jæja netið er komið og ég get farið að blogga aftur :) :) :)
Það hefur nú svo sem ekkert mikið gerst þessa daga hjá okkur nema það að við erum flutt og svo til búin að koma okkur fyrir,
krakkarnir alveg himinlifandi yfir þessu það er hægt að labba í og úr leikskólanum og styttra fyrir okkur að aka til og úr vinnu.
Börnin fóru norður til föður síns föstudaginn 26. okt og á leiðinni norður keyrðum við fram hjá banaslysinu sem varð uppi á heiði.
Rosalega voru bílarnir ílla farnir, skelfileg sjón að sjá. Við og Alexandra ókum svo suður á laugardeginum eftir að hafa farið yfir
að Sturluhóli og gefið ullarpöddunum hans Guðjóns og mátað myndavélina sem Össi gaf mér í afmælisgjöf - ekkert smá flott Cannon EOS
20D, við tókum slatta af myndum að ullarpöddunum og hrossunum og hinu og þessu sem að okkur datt í hug. Við stoppuðum við á
Akranesi hjá mömmu á leiðinni suður og fengum nýbakaðar vöfflur ummmmm. Þegar við komum svo í bæinn var brunað heim að skipta um
föt og við fórum í útskriftarveislu hjá henni Erlu, til hamingju með útskriftina Erla okkar. Eftir veisluna fórum við svo á
systkina spilakvöld heima hjá Dóra og Möggu. Alexandra fór svo heim í sveitina með pabba og Diddu í dag.
En jæja nú að hrossa málum hún Króna mín er seld ég er mjög ánægð með það, langaði að vísu til að eiga hana sjálf en ég get ekki
átt allt. Hugrún og Páll Bragi í Austurkoti keyptu Krónu mína og óskum við þeim til lukku með merina.
Jæja nú er komið að lokum í bili og þangað til næst bæbæ.
07.10
Hæ hæ hæ
Komið þið sæl...
Áður en ég byrja að skrifa einhverjar frétti þá ætla ég að óska Möggu mágkonu til hamingju með 30. afmælið og einnig Sissa vini
mínum sem einnig er 30 ára í dag. Til hamingju þið bæði.
Eitt sem alltaf hefur gleymst að setja hér inn er að hún Gæska sem Lilja lánaði okkur undir Hött frá Hofi reyndist því miður vera
geld :(
Gjálp og Flotti eru farin aftur í sveitina, Lilja er búin að skóla þau aðeins til. Gjálpin er skapstór en gefur eftir var þó ekki
að fatta það að Lilja væri ekki ein af stóðinu sem hægt væri að bíta frá sér en hún náði því þó að vissuleiti :) Flotti var ekki
eins samvinnuþýður stimpaðist meira á móti og er tregur :( kom ekki eins út og vonast var til af honum.
Börnin fóru til föður síns 28. sept og komu heim í dag. Við fórum norður í gær eftir velheppnaða pabba-niðja veislu heima hjá Maju
systur og fjölskyldu. Smá hálka var uppi á heiði en ekkert mikið en það va hvítt fyrir norðan eiginlega bara slatti af snjó. Við
kíktum á graðhesta sem að allir litu vel út feitir og pattaralegir og reiðhrossin sem einnig litu vel út en stóðið var lengst uppi
í fjalli þannig að við slepptum því að kíkja á það. Flotti og Gjálp eru enn með reiðhestunum og þau líta bara vel út. Gjálpin mætti
alveg vera feitari þar sem hún er með slysa-fyli.
Alexandra kom í bæinn á þriðjudagskvöldið og fór ég með hana til tanna á miðvikudagsmorguninn: Tanni var mjög ánægður með hana og
hún þarf ekki að fara aftur fyrr en eftir ár :) Svo fór hún upp á Akranes á fimmtudagskvöldið með Kollu frænku og svo í
sumarbústaðinn með mömmu á föstudag og var þar um helgina. Pabbi sótti hana svo og þau fóru norður.
Jæja ekki hef ég meir að segja í bili en þangað til næst bæbæ.
25.09
ÆÆÆÆÆ tveimur dögum eftir áætlun :(
Halló öll sömul..... Vá hvað tíminn líður fljótt...Ég ætlaði að blogga á sunnudögum og ég var að fatta að að er kominn þrðjudagur.
HEHE hehe.
En jæja einhvers staðar stendur betra er seint en aldrei.
Það hefur nú ekki margt gerst í þessari viku en þó eitthvað. Ég fór og kíkti til Lilju og athugaði hvernig gengi með tryppin mín
tvö þau Flotta og Gjálp. Gjálpin er öllu jákvæðari en Flotti sem er eiginlega bara þver og finnst þetta tamningarstúss bara ekkert
fyndið :(. Hann er ekki jafnfljótur að gefa eftir eins og Gjálpin. En mér skilst að albróðir hans hafi verið eins og sé bara hinn
þokkalegast reiðhestur í dag og ekkert vandamál með hann..... sumir eru bara seinni en aðrir að fatta út á hvað þetta
tamningar-vesen gengur. Gjálpin er aftur á móti þannig að hún tekur eftir og lærir en þegar henni finnst vera komið nóg af
einhverju máttu eiga von á biti. Mér skilst samt að þessi bitköst hennar minnki með hverjum deginum og að núna sé þetta meira til
að sýnast :).
Nú er Króna mín komin í bæinn og búið að járna hana :). Hún er einnig í húsunum hjá Lilju og bara jafnvel seld. Króna er hálfsystir
Flotta og Gjálp, þau eiga öll sama föðurinn, þau eru jafn lík eins og þau eru ólík. Bara gaman af því ekki satt. Það er einnig
gaman að sjá hvað klárinn er að gefa frá séren þau eiga náttúrlega líka mæður og þær gefa sitt líka þannig að ekki er hægt að dæma
allt á föðurinn.
Hér á bæ eru allir hressir en þó eru börnin að fá einhverja kvef-vellu (leikskóla-kvef) en vonandi rjátlast það af þeim sem fyrst.
Ég veit nú ekki hvað ég á að skrifa meira það hefur svo lítið gerst núna undanfarið nema jú hann pabbi átti afmæli þann 22. og
óskum við honum innilega til hamingju með daginn.
Jæja kveð nú --- þangað til næst bæbæbæbæ.
17.09
Einum degi of seint :)
Jæja ég var víst búin að segjast ætla skrifa eitthvað á hverjum sunnudegi hehe. Ekki byrjar það vel hjá mér að vera einum degi of
seint hehehehe!!!!!!! En það er þó bara einn dagur en ekki einhverjar vikur.
Á föstudaginn fóru Össi og börnin austur til Rikka og Siggu að sækja Mökk og Mósa, meðan var ég á því leiðinlegasta námskeiði sem
ég hef farið á (vinnuvélanámskeið). Þegar þau voru komin til baka í bæinn héldum við norður í sveitina. Börnin fóru til föður síns
en við á Njálsstaði með klárana okkar tvo. Á laugardeginum var riðið fram að Kirkjuskarðsrétt með viðkomu í Mánaskál hjá Kollu og
félögum. Í Kirkjuskarðsrétt hittum við vin okkar Greg og viti menn hann var ríðandi. Hann hafði farið upp um morguninn ásamt fleira
fólki sem komið var til að upplifa þessa ævintýralegu smalamennsku á Dalnum (Laxárdalnum). Einnig hittum við Lindu vinkonu Kollu,
hún var auðþekkjanleg í appelsínugulu-flísbuxunum sínum, Kolla hafði beðið okkur sértstaklega um að litast um eftir þessum litfögru
buxum og athuga hvort eigandi þeirra héti ekki Linda sem og passaði. Riðum við svo með þeim Lindu og Gerg niður að Skrapatungurétt
með viðkomu hjá Kollu í baka leiðinni og fengum þar heitt kakó, mikið var það gott í öllum kuldanum sem var þarna. Á sunnudeginum
kíktum við í réttirnar og lituðumst eftir litfögrum og fallegum hrossum, mikið var um dýrðir í þeim efnunum en ekkert var verslað
að þessu sinni (það er ekki eins og við eigum ekki nóg af hrossum....en það er alltaf gaman að skoða). Á leiðinni heim úr réttunum
fórum við með Alexöndru Dögg að skoða nýjustu eign sína í hestamennskunni.... Það mun vera hann Sólon sem Össi átti. Alexandra er
orðin svo dugleg á hestum að við erum nokkuð viss um að hún geti riðið Sólon rétt eins og henni Dögun hans pabba.
Milli þrjú og fjögur sóttum við litlu krílin á Syðra-Hól og brunuðum í bæinn. Þegar heim var komið lögðust börnin til hvílu og við
í afslappelsi enda var ekkert bloggað í gær hehehehe.
Nú ætla ég að hætta þessum skrifum svo ég hafi eitthvað að skrifa um næst svo sæl að sinni.......
12.09
Loksins koma einhverjar fréttir :)
Sælt veri fólkið...
Of mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan síðast hehehumm. Ég veit varla hvar ég á að byrja.
Jæja byrjum bara á börnunum. Við fórum norður og sóttum þau til föður síns á sunnudaginn síðasta. Mikið er gott að vera búin að fá
þau heim og þau hafa stækkað svo mikið í sumar að ég held að ég verði bara að skifta út flestum fötunum úr fataskápunum þeirra. Þau
byrjuðu aftur í leikskólanum á mánudeginum en voru bara stutt þar sem þau hafa ekkert verið á honum í þrjá mánuði. Allt gekk eins
og í sögu og deildarstjórarnir þeirra sögðu að það hefði verið eins og þau hefðu aldrei farið í sumarfrí. Ég var mjög ánægð að
heyra það.
Snúum okkur svo að hrossunum. Við erum búin að fá allar merarnar nema eina frá stóðhestunum sem við héldum undir. Hera og Prúð komu
heim fyrstar. Föstudaginn 31. ágúst sóttum við svo Líf til Glúms frá Stóra-Ási. Náðum bara í hana út í haga og settum hana á
kerruna, það var ekkert mál. Svo brunuðum við í V-Hún á bæinn Hrísar að sækja Láð, hún ver ekki eins auðveld en allt hafðist þetta
fyrir rest. Því næst var brunað á Njálsstaði og kerran affermd og hryssurnar settar saman við hluta af stóðinu. Við eigum eftir að
sækja hana Gæsku sem Lilja lánaði okkur og koma henni í sinn haga. Morguninn eftir fórum við og tókum þau hross úr stóðinu sem ekki
áttu að fara upp í land, þar inni í var Þrenna frá Svalbarði. Hún var sett upp á kerru og henni ekið heim á Svalbarð. Í sömu ferð
sóttum við Fjarka okkar sem Svanur var með í láni í sínum merum á Svalbarði. Nú þurfti mikið að spekúlera hvernig ætti að fara að
þessu þar sem við vorum bara tvö og með meri með folaldi sem þurfti að setja í hagann og stóðhest sem þurfti að taka úr sama
haga..... En þetta leystist allt mjög vel. Fyrst fórum við og náðum Fjarka, sem lét elta sig smá en mesta furða hvað þetta gekk vel
þar sem hann er bara tveggja vetra og lítið búið að eiga við hann. Við rákum stóðið í smá aðhald og svo var hann mýldur, hann var
nú ekkert of hrifinn en það tókst með þolinmæði og hraða hestsins. Við fórum með klárinn fram fyrir jeppann og ég tók Þrennu út úr
kerrunni og setti hana saman við merarnar á Svalbarði. Síðan var Fjarki teymdur upp á kerru og hann fór þetta bara eins og hann
hefði aldrei gert neitt annað. Það má segja að við höfum verið mjög heppin með hvað þetta gekk allt snuðrulaust fyrir sig 7,9,13.
Brunað var með Fjarka heim á Njálsstaði og hann settur saman við hina stóðhestana á bænum. Ekki var mikið um stæla þegar hann
bættist við. Þegar þessu var lokið settum við systkynin þau Gjálp og Flotta upp á kerru og brunuðum í Borgarfjörðinn. Þar fengu þau
að gista eina nótt hjá Kolla og Láru í Stóra-Ási þar sem við vorum að fara í afmælisveislu upp í bústað þar rétt hjá. Ekki var nú
mikið mál að ná þeim og koma á kerru daginn eftir og svo var brunað með þau í bæinn í tamningu hjá henni Lilju okkar. Nú er nóg
komið af hrossum.
Um verslunarmannahelgina skelltum við okkur til Eyja ásamt Elíasi, Unni, Óla, Svansý, Elínu og Gabriel. Þetta var rosalega
skemmtileg ferð og hópurinn náði vel saman. Strax eftir Eyja-ferðina fórum við norður og vorum með börnin í nokkra daga á
Njálsstöðum áður en við héldum austur með Gumma, Brynju og Heiðu á hreindýraveiðar. Össi og Gummi fengu sitthvora kúnna og voru þær
veiddar á miðvikudeginum. Við héldum heim á föstudegi og fórum við og Heiða norðurleiðina en Gummi og Brynja suðurleiðina. Við
stoppuðum við á Sauðárkrók og settum húðirnar af hreindýrunum í sútun, síðan lá leið okkar á Njálsstaði. Við hittum Alexöndru sem
er búin að vera í sveitinni hjá afa sínum síðan skólinn var búinn og er nú flutt þangað, þar sem henni líkaði ekki borgarlífið. Það
sést líka bara hvað henni líður miklu betur í sveitinni hún geislar öll og er rosalega hamingjusöm. Hún verður í skóla á Blönduósi
og er byrjuð í skólanum núna. Við hittu hana þegar við sóttum yngri börnin til föður síns um síðustu helgi þegar þau voru að koma
heim úr sumarfríi. Auðviðtað voru allir í réttunum að draga fé Björn Elvar og Stefanía Dúfa voru að draga með föður sínum og
Alexandar Dögg var líka að hjálpa Magnúsi.
Ég veit ekki hvað ég á að vera skrifa meira nema það að nú er aftur komið það líf og fjör á heimilið sem var áður en börnin fóru í
sumar frí.
Jæja nú kveð ég að sinni og reyni nú að koma með fréttir alla vegana einu sinni í viku. Erum að stefna á að skrifa alltaf á
sunnudögum og eitthvað inn á milli.
Kveðja Dódó og Össi
07.07
Myndir
Er búin að setja inn 2 myndasíður, af Fjarki vorið 2007 sem hann Nonni frændi tók en hann er myndasnillingur.
Svo setti ég inn myndir af því þegar við fórum með Líf undir hann Glúm frá Stóra Ási , en hún Líf var ekkert tilbúin að hitta hann
og sótti alltaf til mín þegar Glúmur kom en en hann fór mjög rólega að henni svo hún sættist við hann á endanum,
jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.
05.07
Allt að gerast
Halló halló halló
Við biðjumst velvirðingar á blogg- og heimasíðuleysi.... Heimasíðan var eitthvað að stríða okkur en er nú komin í lag.
Margt er búið að gerast síðan síðast. Við erum búin fá þau folöld sem við fáum í ár og setja inn myndir af þeim.
Fyrst kom Jesús (en við erum búin að blogga um hann),
annar er Jóker Máni hann er móálóttstjörnóttur undan Heru og Gosa frá Garði og þriðja er Lífsgjöf hún er jarpstjörnótt undan Líf og
Grun frá Oddhól. Mikil lukka að fá meri undan Grun enda góður hestur.
Við erum búin að koma öllum þeim fimm hryssum sem halda á í sumar undir fola og þeir eru ekki af verra taginu...
Prúð fór undir Þrist frá Feti, hún sónaðist fylfull og er komin heim aftur.
Hera fór undir Rektor frá Njálsstöðum.
Láð fór undir Fursta Glampason frá Efri-Þverá.
Líf fór undir Glúm frá Stóra-Ási.
Gæska fór undir Hött frá Hofi, Gæsku fengum við að láni hjá Lilju okkar.
Fjarki okkar er nú að þreyta frumraun sína sem stóðhestur, hann fór til hans Svans og er þar með fjórar merar til reynslu. Það
verður gaman að sjá hvernig það kemur út þar sem þær voru svo helv..... fráhrindandi við hann þegar hann kom :)
16. júní var hann Hranna Snær skírður í Stór-Ás kirkju. Össi og ég vorum plötuð til að vera Guðforeldrar (skírnarvottar) sem er
bara fyndið þar sem að við erum bæði ásatrúar hehehe. Daginn fyrir skírn fórum við norður í svetina. Þar skoðuðum við folöld og
fleiri hross. Á laugardags morguninn sóttum við Björn Elvar og Stefaníu Dúfu og brunuðum í Borgarfjörðinn þar sem beið mín
skírnarterta tilbúin til áritunar. Eftir skírnina fóru öll börnin aftur norður Björn Elvar og Stefanía fóru aftur til Magnúsar og
Alexandra Dögg fór í sveitina til afa ásamt Valdimar. Við brunuðum austur á Selfoss þar sem við hittum Lilju, Bigga, ormana þeirra,
Nonna og Sillu. Þau voru í sleppitúr. Riðu frá Reykjavík til Kaldárholts sem er í Holtunum. Seinna á laugardagskvöldið hittum við
einnig vin okkar hann Hilmar sem var skemmtilega hress :) Við gistum hjá Lilju og Bigga í nýja hjólhýsinu þeirra, það er bara
flottur gripur.
Þann 30. júní var mikið að gerast. Deginum áður ókum við á móti Signý systir til að nálgast börnin og fórum svo í bústaðinn. Svo
þann 30. var hin árlega grillveisla í bústaðnum hjá ömmu og afa á Skaganum, þar var margt um manninn eins og vanalega. OG veðrið
var hreint út sagt æðislegt og flest allir BRUNNU í sólinni sérstaklega ég..... Eftir grill ókum við á móti Magnúsi með börnin og
héldum svo suður í brúðkaup hjá Óla og Svansý og óskum við þeim hjartanlega til hamingju með daginn. Mikið fjör var í veislunni og
maturinn æðislegur. Sýnd voru myndbönd af gæsuninni og steggjuninni það var æðislegt, Regína Ósk söng nokkur lög og svo voru Dj-ar
sem sáu um tónlist kvöldsins með frábærri tónlist fyrir alla.
Jæja þetta er nú orðið efni í heila bók svo ég held að ég stoppi við núna svo ég hafi eitthvað að skrifa um næst :)
Bless þangað til.
03.06
Norðurferð
Við fórum norður á föstudaginn með krakkana og verða þau hjá pabba sínum í allt sumar . Við fórum og skoðuðum folöldinn en það erum
kominn 3 núna fyrir norðan allt HESTAR , en okkar folald er jarpt ekki móálótt eins og ég var búin að segja hérna fyrr í vikunni.
hægt að sjá mynd af honum í 2007 árganginum hérna í unghross
29.05
Litla-Blesa kastaði í morgunn
Litla-Blesa kastaði í morgun móálóttum hest .En hann er undan Straum Smárason hans Rikka (hægt að sjá mynd af honum í myndaalbúminu
undir graðhestar sem við höfum notað) . En Litli Kúturinn mun heita Jesús (samkvæmt samningi sem ég og Rikki gerðum).
Reyni að koma með mynd af honum eftir helgi en við þurfum að fara norður með krakkana á föstudaginn. Reyni að taka myndir af honum
þá.
Vona að Hera verði búin að kasta þá líka en Stebbi hélt að það væri stutt í hana.
Líf á ekki að kasta fyrr en c.a. 26 júní og þetta er fyrsta folaldið hennar svo hún gengur sennilega með fulla 11 mánuði
23.05
Halló, halló, halló
Haldiði ekki bara að Gummi og Brynja hafi gift sig áðan í útskriftarveislunni hennar Brynju (komustum því miður ekki en fengum
fréttir af þessu) óskum þeim innilega til hamingju með þetta. Það kom folald um daginnn fyrir norðan bleikálóttstjörnóttur hestur
undan Áll og Frekju en hann Stebbi á hann, annars er ekkert að ske í folaldamálum hryssurnnar lúra á þessu eins og ormar á gulli.
Þangatilnæst
1. maí
Jæja enn líður mánuður á milli þess sem við bloggum...... er það ekki bara fínt ;) hehe
Þegar við fórum í sveitina um páskana klipptum við hófa á Fjarka og Spíral. Það gekk mis vel en hafðist þó að lokum með góðu,
einnig fórum við og skoðuðum stóðið og tókum nokkrar myndir sem enn á eftir að setja inn á síðuna okkar. Gerist vonandi fljótlega
:)
Börnin komu spræk frá Magnúsi 2. apríl og mikið var gaman að fá þau heim :)
Við erum búin að senda Feng og Kristal heim í sveitina og lifa þeir nú sældar lífi í stóðinu. Í ferðinni sem farið var með þá tvo
norður tókum við Rektor, graddan hans pabba, og fórum með hann til Rikka á Syðri-Úlfsstöðum. Rikki verður með hann í mánuð og svo á
að sjá til hvað verður gert við hann.
Við fengum góðar fréttir hjá Lilju okkar um daginn...... Króna er kominn með vinnu hjá Gunnari Birgissyni bæjarstjóra Kópavogs. Hún
er byrjuð á niðurrifi í Gust og fyrsta húsið sem varð fyrir valinu er hjá formanninum. Eins og Lilja sagði þá er hún ekki bara
steinbítur heldur líka termítur og járnbítur. Ég er loknsins búin að sjá Krónu hjá Lilju og líst mér bara vel á hryssuna, brokkið
mætti vera betra en það kemur með meiri þjálfun. Lilja ætlar að senda hana í hestaferð í sumar í þeirri von um að brokkið komi.
Graðhestamálin breyttust aðeins í síðustu viku Prúð sem átti að fara til Glúms frá Stóra-Ási fer til hans Þrists frá Feti og á að
fara á morgunn. Önnur graðhestamál eru óbreytt.
Össi fór með Mósa til Lilju um daginn og fékk að baða hann enda veitti ekki af hann var vægast sagt ógeðslega skítugur. Hann var nú
samt ekki lengi voða voða hreinn þar sem honum finnst voða gott að liggja inni í stíunni sinni, en hann er ekki eins og hann var.
Við brunuðum með börnin norður á föstudaginn til Magnúsar. Rosalega er alltaf erfitt að skilja við þau, en þau koma aftur á
sunnudaginn eftir viku.
Í dag fórum við austur til Rikka og Siggu, með klárana okkar tvo í kerrunni og fórum með þeim í smá rekstur á tamningartryppunum.
Þetta var rosalega gaman og gott fyrir klárana að komast burt af malbikinu :) Tryppin flyppuðu alveg út það var svo gaman hjá
þeim. Það eina sem komst að hjá þeim var að hlaupa, hlaupa og hlaupa meira, það þurftu allir að vera fyrstir. Fyrrum graðhestarnir
tveir sem voru með í ferðinni sáu um að skipta stóðinu á milli sín, reyna að stela svo frá hvor öðrum og reka hvorn annan úr
hópnum. Gaman að sjá hvernig þeir vinna þó búið sé að taka kúlurnar úr þeim.
Við héldum svo af stað heim seinni partinn og gengum frá öllu í hesthúsinu og gáfum hrossunum.
Mikið er þetta nú ekki að sinni þannig að þangað til næst bæjó
02. apr
Góðan daginn !!!
Enn líður of langt á milli þess sem við bloggum hehehe :)
OG enn breytast þessi blessuðu graðhesta-mál.....Nú hefur enn ein hryssan bæst við hópinn hjá okkur. Hryssan sú heitir Prúð og er
frá Árbakka, hún er Kolkuósættuð. Stefnum við að því að halda henni undir Glúm frá Stóra-Ási. Hryssu þessa fengum við í skiptum
fyrir Hey-Finn frá Köldukinn. Við fengum þessa meri 23. mars hjá Gunna bakara og brunuðum með hana beint norður í sveitina þar sem
hún kemur til með að vera eingöngu í folaldseign. Í baka leiðinni tókum við Hey-Finn til Gunna og Króna kom einnig aftur í bæinn og
fór til Lilju. Lilja vildi endilega fá merina aftur og reyna að gera eitthvað úr henni fyrir mig. Sérstaklega þar sem að Lilju
þykir svo vænt um hana og kjánaskapinn í henni :) Annars er hún Króna mín hið besta skinn :) svolítill kjáni en ósköp góð :) Tölt
og brokk gott, örugg og verður gott reiðhross.
Litla dýrið okkar hún Sóldögg var að ljúka grunnnámskeiði hjá HRFÍ og fékk hún 10 á prófinu :), (en ég ekki nema 9 :( ), sem við
erum náttúrulega rosalega montin af og meigum líka vera það ekki satt ??? :) Og nú er að koma að næsta námskeiði hjá henni sem
byrjar núna á miðvikudaginn og er það fiminámskeið. Það verður gaman að sjá hvernig það gengur. Verðum með einhverjar fréttir af
því hér á síðunni :)
Börnin fóru norður til Magnúsar þann 23. mars og koma ekki aftur heim fyrr en 9. apríl þegar páskafríið er búið. Ég hringdi í þau í
dag og spjallaði við þau þar sem að hún Stefanía Dúfa mín er 2ja ára í dag. Stefanía var nú ekki viss hvað hún átti að gera við
símann og var voða hissa þegar það kom rödd úr honum :) Ég talaði líka við Björn Elvar minn. Mikið var gott að heyra í röddunum
þeirra. Það styttist í að þau komi heim en það er samt alveg heil vika.
Á miðvikudagskvöld eða á fimmtudag ætlum við upp í bústað til tengdó og vera þar fram á laugardag og svo bruna norður í sveitina og
hrossast fram á mánudag. Klippa hófa, annað sem til fellur og skoða stóðið. Á mánudaginn sækjum við börnin til Magnúsar og höldum
svo heim í Reykjavíkina.
Þangað til næst bæjó
07. mars
Nú er aftur orðið kátt á hjalla hjá okkur hjónaleysunum. Björn Elvar og Stefanía Dúfa eru komin heim úr rúmlega viku dvöl hjá föður
sínum. Þau fóru norður 23. feb. og komu aftur heim 4. mars með Signý frænku. Við keyrðum að vísu á móti henni upp á Akranes til
ömmu og afa. Börnin voru bara hress og voðalega ánægð að hitta mömmu og pabba aftur sem og amma og afi voru voða ánægð að hitta
okkur öll.
Meðan börnin voru fyrir norðan nýtti ég tímann í hesthúsunum þess á milli sem ég var ekki með Alexöndru eða að vinna. Alexandra fór
í heimsókn til ömmu og afa í Kópavoginum helgina 2.-4.mars. Þau og pabbi hennar eru einstaklega dugleg við að hafa samband við hana
og bjóða henni í heimsókn og hún að hafa samband við þau, sem er hið besta mál.
Pabbi og Didda komu í stutta heimsókn til okkar á laugardaginn síðasta, þau komu í bæinn til að hitta afkomendur sína.
Á laugardagskvöldið þann 3. mars fórum við í \"sextugs-afmæli\" (2x30) hjá Lilju og Maríu. Þar var margt um manninn og mikil
gleði........ :) OG guðaveigarnar fóru misjafnlega ofan í liðið :) Við hittum þarna nokkra sem að við könnumst við úr
hestamennskunni. Það var skrafað fram eftir öllu kvöldi og nóttu um hin og þessi málefni en þó aðallega um hesta HVAÐ ANNAÐ :)
Talandi um hross þá erum við hætt við að nota Glym frá Innri-Skeljabrekku og búin að missa af stóðhestinum sem við ætluðum að nota
í staðinn á Gæsku Skorradóttur, sem við fáum til afnota í sumar hjá Lilju, þar sem búið er að selja hann úr landi. Hesturinn sem
átti að nota var Tenór Keilissonur frá Auðsholtshjáleigu. Klárinn sá fór til Baunaveldis :(......... Skamm, skamm Gunnar :( :( En
þetta reddaðist allt og erum við búin að finna annan hest og það verður \"huldu-hestur\" :) Gullfallegur og skemmtilegur
alhliðahestur með fallegan lit, (Lilja finnur aldrei út hver það er hahahaha :)) Núna erum við búin að fast negla þær merar og
stóðhesta sem við ætlum að nota í sumar :)
Jæja þá er þessum skrifum lokið í bili, þangað til næst BÆBÆBÆBÆ
19. feb
Jæja jæja það er allt of langt síðan við skrifuðum eitthvað síðast og mikið vatn runnið til sjávar síðan.....
Fyrir mánuði síðan fóru Alexandra Dögg og Valdimar til ömmu á Blönduósi og einnig til afa og Diddu í sveitinni yfir helgi. Þeim
fannst þetta mikið ævintýri eins og vanalega. Þegar Alexandra kom heim fór ég með hana til læknis vegna ljóts hósta sem hún var
búin að vera með í langan tíma og fór versnandi. Fékk hún þær niðurstöður að sennilega væri þetta ofnæmi fyrir Skrípli sínum
:(.......
Þann 24. jan veiktist Dódó amma mikið og var ekki vitað hvernig færi og að morgni 25. jan var amma farin á vit feðra sinna. Blessuð
sé minning hennar og megi henni líða vel hinu megin. Ég veit að hún vakir yfir okkur og fylgist vel með :) Einnig veit ég að henni
líður miklu betur núna, hún er frjáls :)
Börnin fóru norður, í viku dvöl, til föður síns 26. jan og við fórum í sumarbústað með Óla og Svansí, Gumma orm og Erlu og Þórir.
Við fengum lánaðan bústaðinn hjá tengdó. Það var mjög gaman nema fyrir utan að heitipotturinn virkaði ekki sem skyldi :(, en annars
bara mikið fjör. Haldið var upp á 27 ára afmælið hans Össa á laugardeginum með átveislu og öli :)
Föstudaginn 2. feb var amma lögð til hinstu hvílu, og þarna kvaddi ég hana í hinsta sinn. Ég fór í snemma í kirkjuna til að kveðja
ömmu því ég komst því miður ekki í kistulagninguna. Mikið rosalega var erfitt að horfa bara á lokaða kistuna og geta ekki kysst
ömmu bless. Athöfnin var rosalega falleg og vel skipulögð þetta var allt eitthvað svo í ömmu stíl :) Kirkjan var þétt setin og
einnig var þétt setið í erfisdrykkjunni.
Á laugardagskvöldið ætluðum við á hreppablótið en hættum við vegna veikinda og kúrðum bara heima í sveitinni og höfðum það næs
meðan hinir fóru á blót. Á sunnudeginum sóttum við svo börnin til Magnúsar og héldum í borgina.
Hryssan Rák kom svo til okkar á mánudeginum handa Alexöndru til að ríða út á í vetur, einnig komu Bylur og Nökkvi fyrir Signý
systir.
16. feb kom Sædís frá Grundarfirði til að skoða Byl og fór í prufu reiðtúr á honum og fórum við Mósi með. Hún var mjög ánægð með
klárinn en ætlaði samt að skoða fleiri hross áður en hún tæki ákvörðun. Hún kom svo aftur daginn eftir og fór í annan reiðtúr og þá
fóru Össi og Mökkur með. Þegar þau komu til baka var Sædís í skýjunum og sagðist hafa fundið sjálfa sig aftur og er það hið besta
mál. Hún talaði við pabba og reyndi að semja um verð sem að lokum tókst. Keyrðum við svo á móti henni í Borganes með klárinn á
sunnudeginum.
Á laugardagskvöldinu fórum við og horfðum á Lilju keppa í \"Svellkaldar konur\" í Laugardalshöllinni og viti menn hún kom 4. inní
A-úrslit og hélt sínu sæti. Sko mína :) Til hamingju með árángurinn Lilja okkar. OG hún sem ætlaði heim eftir keppnina því henni
fannst ekki ganga nógu vel. Svona getur maður misreiknað sig.
Við reyndum svo að vera rosa dugleg í hesthúsinu þessa helgi og mokuðum út úr stíunum hjá Mekki og Mósa og Kristal og Feng, ekki
létt verk það :) en bara gaman af því.
En annars er allt gott af frétta úr þessu pestarbæli sem við höfum búið í núna vegna inflúensu sem lagði undir sig heimilið.
Jæja nú er búið að skrifa heila sögu og ætla ég að hætta núna og reyna að vera duglegri að skrifa humm.
Sæl að sinni og ég reyni að setja inn nýjar fréttir fljótlega. :) :)
19. jan
Núna erum við búin að taka ákvörðum um þá stóðhesta sem við ætlum að nota næsta sumar :).... (þangað til annað kemur í ljós), en
þetta er samt nokkuð skotheld ákvörðun.....
Hera fer undir Kjarval frá Sauðárkróki,
Láð fer undir Fjarka frá Njálsstöðum og
Líf fer undir Glúm frá Stóra-Ási.
Svo er reyndar spurning hvort að einni eða tveimur merum verði haldið til viðbótar, þá myndu það vera hugsanlega Nótt sem færi þá
undir Fjarka frá Njálsstöðum og meri sem okkur bauðst að láni og færi hún þá undir Glym frá Innri-Skeljabrekku. En ekkert er búið
að ákveða með þessar tvær síðari, tíminn einn mun leiða það í ljós. Búið er að járna Mökk og fara á honum skeifnasprettinn :) en
ekki er enn búið að járna Mósa :( ..... Ekki hefur unnist tími til þess þar sem að börnin eru bæði búin að vera veik. Stefanía
Dúfa kom veik frá pabba sínum með upp og niður gaman gaman :( og svo er Björn Elvar búinn að vera veikur síðan á þriðjudag, bara
einhvern hitatopp. Það virðist ekkert ama að honum nema hiti, hann er rosalega hress annars. Þannig að við höfum skipt deginum á
milli okkar þannig að ég hef unnð fyrir hádegi og Össi eftir hádegi. Hann fær að fara á leikskólann á morgunn þar sem að hann var
hitalaus í dag. Alexandra Dögg og Valdimar ætla að fara norður með Signý systir á morgunn og hitta mömmu, pabba og Diddu. Þau gista
fyrstu nóttina á Njálsstöðum og þá seinni hjá mömmu, það á eftir að vera gaman hjá þeim. Það á að far að hrossa-ragast eitthvað á
Njálsstöðum þannig að það verður nóg að gera hjá þeim.
Við ákváðum að kaupa okkur sófa um daginn og er hann bara helv... góður fyrir utan það hvað hundahárin vilja festast við hann :(
það gleymdist alveg að gera ráð fyrir hundahárum þegar sófinn var keyptur :( EN það vill til að það er gott að þrífa hann :) Jæja
ég núna ætla ég að hætta þessum skrifum þangað til næst :) :)
08.jan
Gleðilegt nýtt ár og allt sem að því fylgir............... Það er nú orðið helst til langt síðan að ég skrifaði hér síðast.....
Maður ætlar sér allan tímann í heiminum til þess að gera allt en svo verður manni helst til lítið úr hendi. Ég ætlaði að vera miklu
duglegri að blogga hér á fréttasíðuna en svona er þetta stundum..... Í desember vorum við að vinna eins mikið og við gátum Össi þó
heldur minna þar sem að það var engin desember-opnun hjá Láshúsinu. Það var opið til 22.00 öll kvöld í IKEA til jóla þannig að það
var nóg að gera þar. Ég þurfti að vísu ekki að vinna til 22.00 öll kvöld ég fékk að raða mínum vinnutíma niður vegna barnanna. IKEA
má eiga það að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Þegar ég var ekki í vinnunni reyndum ég og börnin að fara með Össa í hesthúsið og
hjálpa til þar. Það var að vísu ekki oft en við létum þó sjá okkur af og til. Svo voru jólin allt í einu komin og allt það stúss
sem að þeim fylgir. Mamma kom í heimsókn til okkar og var hjá okkur í nokkra daga eða frá 21-27. Það var rosalega gott að hafa hana
hér hjá okkur og henni leið bara vel hérna í Grafarholtinu. Á aðfangadag komu Dóri, Magga, Valdi og Ása og borðuðu með okkur. Þessi
jól var ákveðið að hafa tvíréttað þannig að hér var bæði jólagrautur og sveppasúpa og rjúpur með tilheyrandi meðlæti og partýskinka
með öllu tilheyrandi. Eftir mat og frágang var farið í að taka upp jólagjafir og vá............ Börnin fengu kast það var svo mikið
af pökkum og allir vildu opna alla pakkana og það má segja að það hafi orðið sprenging. Við eldra fólkið reyndum að hafa hemil á
þessu öllu saman en börnin voru svo fljót að á örskömmum tíma var búið að taka upp alla þá pakka sem undir jólatrénu voru. :) En
það vara bara gaman að sjá hvað krakkarnir voru spenntir og hvað það var gaman hjá þeim. Börnin sofnuðu sæl og glöð eftir vel
heppnaða pakka-árás. Á jóladag fórum við í matarboð til tengdó og tókum mömmu með. Eftir vel heppnaða hangikjöts-veislu hjá þeim
voru opnaðir fleiri pakkar, það var aðeins minni atgangur þá og auðveldara að fylgjast hver fékk hvað. Eftir vel heppnað kvöld var
svo haldið heim á leið og börnin sofnuðu sæl og glöð eftir pakka-árás tvö. Í hádeginu á öðrum í jólum borðuðum við hamborgarahrygg
með öllu tilheyrandi. Eftir mat var svo brunað norður með börnin til pabba síns, áttu að vísu ekki að fara fyrr en 27. en það var
vinnu dagur þannig að þau fóru einum degi fyrr. Þegar að við komum norður og pabbi og Didda búin að segja hæ við börnin fór ég með
þau yfir til föður síns. Áður en við brunuðum svo aftur í bæinn borðuðum við hamborgarahrygg og tilheyrandi með pabba og Diddu.
Þegar að heim var komið sátum við og nutum síðasta kvöldsins hennar mömmu hér í bænum með henni. Svo tók við vinna til 30. des og
þá var komið tveggja daga frí. Á gamlárskvöld fóum við í matarboð til tengdó ásamt Heiðu og Andrési, eftir matinn komu Dóri, Magga
og börn og borðuðu með okkur eftirrétt. Að eftirrétt loknum fóru ég og Össi upp í hesthús að gefa hrossunum rétt fyrir allar
sprengingarnar í þeirri von um að þau yrðu rólegri. Eftir hesthús ferðina fórum við í áramótapartý til Allý og Ella á
Seltjarnarnesinu. Á miðnætti var svo byrjað að skjóta upp á fullu, Össi og frændur fóru út með terturnar sem að þeir raðtengdu og
byrjuðu að sprengja ásamt öllum öðrum á stór Reykjavíkur svæðinu. Þetta var alveg magnað og reykjarmökkurinn sem lá yfir öllu, það
sást varla í næsta hús fyrir kófinu. Um 00.30 byrjaði Jói í Múlakaffi að skjóta upp, það jafnaðist á við mjög góða flugeldasýningu
hjá Hjálparsveitinni á Blönduósi. Enda er sagt að hann eyði um milljón í flugelda og þess háttar um hver áramót. :) 2. janúar
byrjaði svo lífið sitt vanagang aftur. Vinna, hestar og almennt heimilishald :) Á laugardaginn var svo haldið í sveitina til að
hrossast aðeins. Þegar við komum norður fórum við upp á tún til að ná í hrossin en þá vildi ekki betur til en að þau hlupu upp að
hliði sem að hleypir þeim upp í fjall (var það sem betur fer lokað). Við máttum því elta þau upp að hliði og koma þeim niður aftur,
sem að þau voru ekki alveg til í að gera og létu okkur hafa fyrir því að snúa sér við. Allt gekk þetta þó á endanum og hrossin fóru
heim í hús. Þá var hafist handa við að taka frá folaldsmerar, hross sem taka átti á hús og þau hross sem átti að skoða betur. Þegar
búið var að flokka hrossin voru þau sem eftir voru sett upp á tún og hinum var komið fyrir í hesthúsunum og hlöðunni og gefið. Á
sunnudeginum voru svo folöldin tekin frá og sett í folaldahúsið og merarnar í hlöðuna og gefið, nema þær sem að eiga að fara í
brúkun voru settar í hesthúsið. Þau hross sem ekki voru sett á hús voru skoðuð betur og síðan sleppt upp á tún til hinna. Að öllu
hrossaragi loknu sótti ég börnin til föður síns fór svo á Njálsstaði og sótti Össa sem var að gera Mósa og Mökk klára fyrir suður
ferð. Við stoppuðum fyrir utan hjá mömmu og kom hún út til að heilsa upp á börnin og svo var haldið af stað suður. Ekki var nú
besta veðrið á leiðinni og hálka eftir því og undir Hafnarfjalli voru 17 metrar og 29 í hviðunum, þannig að það var keyrt rólega og
allir komust heilir heim. Við fórum beint upp í hesthús með klárana og ég fór svo beint heim með börnin. Signý systir náði í Össa
upp í hesthús og skutlaði honum heim. Björn Elvar og Stefanía Dúfa voru ekkert á því að fara að sofa, þar sem að þau sváfu á
leiðinni suður, og voru þau í fullu fjöri þar til að Stefanía Dúfa tók upp á því að æla :( en hún var víst búin að vera veik hjá
föður sínum með upp og niður :(. En svona er þetta og voðalega lítið við þessu að gera :( ..... Núna ætla ég að hætta þessum
skrifum...... mér finnst ég vera búin að skrifa heila ritgerð en þangað til næst bæbæ
Til baka