Fréttir frá árinu 2006
3.des
Það er svolítið tómlegt hér hjá okkur núna þar sem að yngri gríslingarnir eru hjá pabba sínum. Ég keyrði á móti honum á
föstudaginn og hittumst við hjá Fornahvammi í Borgarfirði. Alexandra fór einnig til pabba síns á föstudaginn og við vorum ein
heima í kotinu með Sóldögg og nýja fjölskyldumeðliminum. Hann er naggrís og heitir Skrípill. Alexandra fær hann í jólagjöf
(snemmbúna). :) Sóldögg finnst þetta mjög skrítið fyrirbæri og er alveg til í að skoða hann nánar. Alexandra var
rosalega ánægð með hann og finnst hann flottur :) Á laugardagskvöldið þegar að ég var búin að vinna fórum við til Sjonna og Huld
að spila og skemmtum við okkur konunglega, við spiluðum Sequens og kana. En nú er farið að styttast til jóla og þörf á því að kaupa
jólagjafir handa liðinu þannig að það verður verk næstu daga og skrifa jólakort og svo koma þessu öllu frá sér á réttum tíma. :)
Læt þetta gott heita þangað til næst :)
28.nóv
Það er orðið svolítið síðan það var skrifað hérna síðast.... það er alltaf nóg að gera og tíminn ekki alltaf til staðar þegar
maður þarf á honum að halda. En við erum þó búin að bæta við nokkrum myndum úr Skrapatungu-stóðréttunum, þannig að það er er
eitthvað nýtt á síðunni okkar :) .....Á miðvikudaginn í síðustu viku fékk Björn Elvar lungnabólgu og var strax meðhöndlaður við
henni og er orðinn góður í dag. Hann varð alveg rosalega veikur og munaði litlu að strák greyið endaði á spítala en um leið og
penicillinið var farið að virka var hann fljótur að hressast :) Stefanía er orðin svo til alveg laus við astmann. Það eina sem að
við heldur astmanum er mjólkin þannig að við höfum minnkað hana all verulega við hana en þó ekki tekið mjólkina alveg af henni.
Alexandra er alltaf jafn hress og það virðast bara engin veikindi vilja taka bólfestu í henni 7-9-13 :) og hún er alltaf jafn
dugleg í skólanum og allt gengur vel hjá henni þar. Á laugardaginn fórum við í Borgarfjörðinn nánar tiltekið í Fossatún á
jólahlaðborð með Steinu ömmu, Ingvari afa, og flestum þeirra niðjum. Það var rosalega gaman og maturinn hreinlega frábær. Börnin
skemmtu sér konunglega og átu laufabrauð með bestu lyst :) Þegar að heim var komið kíktum ég (Dódó) og Signý systir í smá tíma
jólaglöggið hjá IKEA. Þegar að við vorum komnar á staðinn mátti sjá marga sem voru vel við "skál" :) Það eina sem hefði mátt betur
fara við glöggið var tónlistin, hún var frekar niðurdrepandi :( En ekki eins og það skipti okkur máli þar sem að við stoppuðu
stutt. ........ Ég fór með Stefaníu í ungbarnaskoðun í gær og fékk hún loksnins 18 mánaða sprautuna. Sveinbjörn læknir sagði það
allt í lagi að hún fengi sprautuna þar sem að hún væri orðin svona rosalega hress og þó svo að það heyrðust smá astma-hljóð í
henni, þá væri hún ekki eins slæm og hún væri búin að vera undanfarið :) Hún tók sprautunni bara vel, horfði á Sveinbjörn og
brosti þegar að hann var að sprauta hana og svo fékk hún plástur á eftir og var hin ánægðasta :) Svo lærði hún líka nýtt orð
það var gá-ta (gráta). Það var nefnilega barn á undan henni sem hljóðaði eins og stunginn grís. Hún leitaði og leitaði að barninu
sem hún sá ekki og svo kom gá-ta :) Jæja nú ætla ég að láta þessu lokið í bili og koma mér inn í draumaheim Góða Nótt :):)
20.nóv
Steina amma á afmæli í dag og er orðin 78 ára. Til hamingju með daginn amma mín :) ...Björn Elvar fékk gest með sér heim úr
leikskólanum í dag, hún heitir Inga, og er "ferðadúkka" á deildinni hans á leikskólanum. Inga fer í heimsókn á hverjum degi með
einhverju barninu á deildinni á hverjum degi. Börnin eiga svo að hafa Ingu með í leik og starfi heima, vera góð við hana, sýna
henni ást og umhyggju og passa að hún verði ekki skítug eða blaut. Björn Elvar, Inga, Stefanía Dúfa, Alexandra Dögg og Sóldögg fóru
í eltingaleik þegar að heim var komið í dag. Inga fékk svo að vera hjá okkur við matarborðið og svo horfðu þau öll á teiknimyndir
Þegar þau höfðu lokið við teiknimynda áhorfi var undirbúið sig fyrir háttinn og þegar allir voru klárir fóru allir upp í rúm. Inga
fékk að kúra upp í rúmi hjá Birni Elvari, svo var sagan um Öskubusku kláruð. Að sögulestri loknum voru börnin sofnuð. Össi fór í
bíó með Óla og Gumma. Þeir fóru til að sjá 007 en.... það voru svo margir að fara á myndina og ekki nenntu þeir að sitja fremst
þannig að stefna var tekin á Borat. Miðað við upplýsingarnar sem að ég hef fengið þá var vælt úr hlátri : ) ...Ég og börnin vorum
bara heima og höfðum það notalegt. Þegar Björn Elvar, Stefanía Dúfa og Inga "ferðadúkka" voru farin að sofa settist ég niður við
föndrið mitt og dundaði við það í ró og næði. Alexandra Dögg horfði á Tekinn og fór svo að sofa það er jú skóli á morgunn og ekki
leyfilegt að vaka frameftir.
19.nóv
Vá hvað það var mikill snjór hér í Grafarholtinu þegar að við fórum á fætur í morgunn. Að vísu er þetta bara lítið á norðlenskann
mælikvarða :) ...OG vá hvað sunnlendingar eru ekki góðir í því að keyra í svona snjóþyngslum. Þegar að við litum út um
eldhúsgluggann í morgunn voru þrír bílar fastir hér í botnlanganum og hjálparsveitin hafði verið kölluð út til að draga. Losuðu
þeir alla bílana nema stóra feita leigubílinn sem sat pikkfastur. Jæja Össi er búinn að sækja hestakerruna okkar austur og er hún
ekki eins illa farin og haldið var :) ...Össi hringdi í veðurstofuna í þetta skiptið til að athuga með veður. Þeir á veðurstofunni
sögðu honum að ekki væri nema einn metri á sek. þannig að hann lagði galvaskur af stað. Þegar á suðurlandið var komið reyndist
veðrið lítið skárra en á miðvikudaginn :( Getur þetta fólk sem hefur með veður og færð að gera ekki sagt manni satt?????....En góðu
fréttirnar eru þær að kerran komst heil heim og gat flutt heyið fyrir hrossin okkar í bæinn :) ...Stefanína kláraði astma-kúrinn
sinn í dag og vonandi getur hún fengið ungbarnasprautuna 27. nóv., hún hefur lagast mikið af astmanum og er öll orðin hressari.
Björn Elvar er hættur að finna til í saumunum eftir viðgerðina/aðgerðina og farinn að hoppa og skoppa eins og honum er einum lagið
:) hann á að hitta Orra lækni á miðvikudaginn til að láta fjarlægja sauminn sem. Mikið held ég að hann verði glaður að losna við
plásturinn og tvinnann sem hangir þarna í naflanum á honum :) ...Alexandra var að fá niðurstöður úr stærðfræðiprófi sem að hún tók
um daginn og viti menn hún fékk 10 og ég er að springa úr stolti af stelpunni minni :) ...Hún er að standa sig rosa vel í skólanum
og eru kennararnir rosa ánægðir með hana :)
16.nóv
Góðann daginn! Hvað er eiginlega í gangi með þetta veður hér á Íslandi? Össi fékk að finna fyrir því í gær...... Hann lagði af stað
austur til að ná í hey fyrir hrossin okkar og í "járningarkennslu". Eftir að hann skoðaði vegagerðarvefinn, sem ekkert er að
marka greinilega, hélt hann austur. Strax eftir að hann var kominn í gegnum Hellu "fauk" hestakerran okkar og endaði á hliðinni
utan vegar. Sem betur fer valt bíllinn ekki og kerran var tóm, þannig að engin slys urðu á fólki né hrossum. Því miður þá
"slasaðist/skemmdist" kerran okkar mikið og verður lengi á gjörgæslu/viðgerð, það brotnaði allt nema hryggsúlan/undirvagninn,
toppurinn brotnaði og öll hægri hliðin er í klessu. EN við horfum á björtu hliðarnar hvað þetta varðar og ætlum að byggja nýja og
betri kerru á undirvagninn sem virðist hafa sloppið heill út úr þessum hremmingum. Við ætlum að gera okkur kerru sem að hentar
okkur betur en þessi gerði og er sterkari og stærri. :) En að öðru leiti þá gekk þessi dagur svo til sinn vanagang. Björn Elvar er
enn smá aumur í maganum eftir viðgerðina og Stefanía Dúfa er á öflugum astma-kúr núna til að reyna að komast fyrir endann á þessu
stóra astma-kasti. Hún er farin að skána og það kurrar ekki eins mikið í henni og gerði en hún mætti alveg vera betri. Hún átti að
fá sprautuna í gær (önnur tilraun) en fékk hana ekki þar sem að hún er enn með of mikinn astma til að hægt sé að sprauta hana.
14.nóv
Nú er þessi dagur svo til búinn. Björn Elvar fór í viðgerðina (naflakviðslits-aðgerðina) í dag og gekk hún bara vel. Honum leið að
vísu ekkert alltof vel þegar hann vaknaði, grét mikið og kvartaði um í maganum. Bara skiljanlegt það er ekki gott að láta grufla
svona í sér það eru svo margar hreyfingar sem eru svo slæmar á eftir og tala nú ekki um á þessum stað. Það er svo margt sem teygir
sig þarna upp í maga. Orra lækni leist nú ekkert á hvað hann fann mikið til þegar að við vorum að fara þannig að hann lét mig hafa
símanúmerið hjá sér ef að hann yrði svona fram eftir degi og eða fram á kvöld. En viti menn litli sterki strákurinn minn var farin
að jafna sig vel um fjögurleitið hættur að kvarta og farinn að hreyfa sig meira en auðvitað sumar hreyfingar sárar. Þessi litla
hetja stóð sig með prýði á allan hátt í dag. Hann vaknaði um hálf átta og var þá strax settur í svelti fyrir aðgerðina það eina sem
hann fékk, frá því í gærkveldi áður en hann fór að sofa, voru tvö djús glös og það fyrir klukkan tíu í morgunn. OG aldrei bað hann
um neitt þó svo hann væri svangur og þyrstur. Hann lét bara vita af því en bað ekkert. Hann á sko stórt hrós skilið fyrir allan
hetjuskapinn og hann fékk það.
13.nóv
Halló nú er þessi dagur að kveldi komin og öll börnin komin í bólið eftir skemmtilegann dag í skóla og leikskóla. Það er alltaf nóg
að gera þegar maður er svona lítill. Á morgunn fer Björn Elvar í naflakviðslitsaðgerð þannig að hann fer ekki í leikskólann og ekki
heldur á miðvikudag og fimmtudag. Ég og bangsastrákurinn minn ætlum bara að vera heima og taka því rólega í ró og næði. Það tekur
smá tíma að jafna sig eftir allt þetta rót sem að svona "viðgerð" eins og Björn Elvar kallar aðgerðina. Hann litli minn er sko ekki
að fara í neina aðgerð heldur á að "gera við" hann. Vonandi gengur allt vel í "viðgerðinni" og að hann verði fljótur að jafna sig
eftir þetta allt saman.
12.nóv
Jæja þá er þessi helgi búin en henni var eytt uppi í sumarbústað (sem mamma og pabbi eiga (okkar bústaður er svo langt í burtu og
er ekki tilbúinn)). Með okkur í för voru Sjonni og Hulda og Árni og Þóra. Haldið var af stað í bústaðinn svo til strax eftir vinnu
þegar Dódó var búin að sinna því sem hún þurfti að sinna fyrir helgina sem og ég og Alexandra farin í helgarheimsókn til pabba
síns. Þegar að við lögðum af stað var komin smá bylur og eftir því sem að við nálguðumst bústaðinn fór bylurinn versnandi. En við
komumst heil á húfi og skemmtum okkur frábærlega þó svo að bölvaður heitipotturinn virkaði ekki :´( Á föstudagskvöldinu strax við
komu í bústaðinn var opnaður öl og byrjað að hella í sig og syngja í SingStar, sem er frábær partýleikur. Að loknum söng og margar
tilraunir til að fá pottinn til að virka var farið að sofa. Á laugardeginum voru allir fremur rólegir fram eftir degi EN svo hófst
öldrykkja og líf færðist í leikinn hjá okkur flestum. Eftir vel heppnað grillað hreindýr og meðlæti var svo farið í karioke og smá
í SingStar. Eftir allan sönginn fóru Árni og Þóra að sofa meðan að ég, Dódó, Sjonni og Hulda fórum í rommý og síðar kana sem
spilaður var til klukkan að verða 6 um morguninn :) Ég vann :) :) Um hádegi á sunnudaginn var svo tekið til eftir allan fagnaðinn
sem átti sér stað um helgina og brunað í bæinn til að horfa á Alexöndru taka þátt í sínu fyrsta handboltamóti !gaman gaman! Þær
Fram stúlkur unnu 2 leiki af 4 þannig að þær meiga bara vera stoltar af sér fyrir þennan árángur og ekki lengri þjálfun en þetta.
Þegar komið var heim af mótinu fengum við skilaboð frá Sillu vinkonu Lilju um það hvort að við vildum taka fyrir hana graðtitt í
fóstur. Svarið var já og fer folinn norður í sveit eftir nokkra daga.
9.nóv
Í morgunn kom Hólmgeir og tók hana Krónu fyrir okkur norður í land. Hólmgeir sagði Össa að einnig væru einnig tvö önnur hross á
leiðinni til Njálsstaða en vissi ekkert meir. Rétt eftir að Hólmgeir var lagður af stað frá okkur hringdi Rikki og lét okkur vita
að Láð og Þula væru á leiðinni heim í sveitina, þannig að Króna fékk smá félagsskap á leiðinni heim.
7.nóv
Vorum að bæta við söluhrossum bæði frá okkur og honum Stebba (Pabbi hennar Dódó). Svo bættum við einnig við umsögninni sem hann
Fjarki fékk í ungfolaskoðuninni núna í vor og nokkrar myndir af honum og Spíral frá því í sumar
1.nóv
Jæja þá er síðan loksins tilbúin (Búið að vera erfið fæðing). En við ætlum að reyna að skrifa hérna öðru hverju.
Til baka